- Anna Lára Pálsdóttir·
Ég hef prófað gusur víða og Bobba fær klárlega toppeinkunn! Vel valin tónlist, ilmur sem örvar og róar skilningarvitin á víxl, nærandi samvera og dekur. Vöðvastyrkurinn úr blakinu kemur sér vel hér því Bobba kemur loftinu kröftuglega á hreyfingu með blævæng og handklæði - sem er svo ótrúlega magnað að upplifa í hitanum. Ég kem aftur....og aftur!
- Óli Freyr Axelsson·
Algjörlega geggjað!
- Þórhalla Ágústsdóttir·
Ótrúlega slakandi, nærandi og góð upplifun, frábær gusumeistari - fer klárlega í áskrift 🥰
- Guðrún Jónína Sveinsdóttir·
Mögnuð stund og Bobba gjafmildur gusustjóri sem er stór þáttur í upplifun ❤️ mæli mjög með
- Sigurður Ólafsson·
Alger snilld. Hélt að ég væri alger kettlingur hvað hita varðar, en tónlistin, ilmolíurnar og hópstemmningin varð þess valdandi að ég þoldi þetta miklu betur en ég hefði talið mögulegt. Frábært í alla staði, líka fyrir hitaskræfur!
- Jona Lind Saevarsdottir·
Geggjuð upplifun og eitthvað sem auðveldlega er hægt að verða háður. Hitinn, olíurnar, tónlistin, lopahúfan og gusustjórinn ❤️alveg með þetta. Algjör slökun. Mæli 100% með þessu. Takk fyrir mig.
- Jón Knútur Ásmundsson·
Meiriháttar upplifun.
- Sigga Magga·
Algjörlega magnað og endurnærandi Mæli 100% með. Bobba frábær gusustjóri
- Vilborg Egilsdóttir·
Endurnærandi upplifun☺️