Norðfjarðargusa
Norðfjarðargusa
Verð 3000 kr. (4000 kr. fyrir tjaldgusu) // Aur 8472328 // 1106-15-200259 kt. 1903745729
Um
Ef enginn tími birtist hér fyrir neðan þá eru allar fyrirhugaðar gusur fullbókaðar.
Gusa er vellíðunarathöfn í gufunni þar sem hitinn, gufan og ilmandi olíur vinna saman að því að slaka á vöðvum, hreinsa húðina og gefa líkamanum og huganum kærkomna hvíld.
Þrjár lotur með góðum hita, ilmolíum og tónlist. Á milli lota er unnið með kælingu, ýmist úti, í köldu kari eða sjó. Hver lota er um 12-15 mínútur. Mikilvægt er að koma með handklæði til að sitja á.
Norðfjarðargusa er með gusutíma í sundlauginni í Neskaupstað. Verð fyrir stakan tíma er 3000 kr. Hægt er að greiða með Aur (8472328) eða inn á 1106-15-200259 kt. 1903745729
Pop up gusutímar verða í sánatjaldi og verða þeir auglýstir sérstaklega. Verð þar er 4000 kr og gilda klippikortin ekki.
Hægt er að bóka einkagusur í sánatjaldið. Pláss er fyrir 8-9 manns í tjaldinu. Hafið endilega samband ef áhugi er fyrir einkagusu í tjaldið.
Afbóka þarf með 12 klst. fyrirvara. Skemmri fyrirvari gæti þýtt rukkun ef ekki er hægt að nýta plássið.
Albúm
Umsagnir
- Anna Lára Pálsdóttir·
Ég hef prófað gusur víða og Bobba fær klárlega toppeinkunn! Vel valin tónlist, ilmur sem örvar og róar skilningarvitin á víxl, nærandi samvera og dekur. Vöðvastyrkurinn úr blakinu kemur sér vel hér því Bobba kemur loftinu kröftuglega á hreyfingu með blævæng og handklæði - sem er svo ótrúlega magnað að upplifa í hitanum. Ég kem aftur....og aftur!
- Óli Freyr Axelsson·
Algjörlega geggjað!
- Þórhalla Ágústsdóttir·
Ótrúlega slakandi, nærandi og góð upplifun, frábær gusumeistari - fer klárlega í áskrift 🥰





